Valur hafði áhuga á því að fá landsliðsmanninn Jóhann Berg Guðmundsson í sínar raðir nú í vetur og er hann sagður hafa fengið samningstilboð frá Hlíðarenda. Þetta kemur fram í ChessAfterDark.
Jóhann Berg (1990) er samningslaus eftir að hann fékk samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rift í febrúar.
Fótbolti.net greindi frá því í síðasta mánuði að Jóhann Berg hefði hætt við að skrifa undir hjá Breiðabliki eftir að samkomulag um kaup og kjör virtist vera í höfn.

„Ég veit að þeir buðu einum leikmanni tvær milljónir rétt fyrir mót. Leikmaður sem er norðan megin við þrítugt. Þeir eru ekkert að skera neitt meira niður en það," sagði Viktor Unnar Illugason, vinur Jóhanns Bergs, í ChessAfterDark þar sem rætt var um Val og aðhald í rekstri hjá fótboltadeildinni.
Umræða hefur verið um að Valur hafi ekki boðið jafn há laun og áður og leikmenn eins og Guðmundur Þórarinsson og Böðvar Böðvarsson sömdu frekar á Skaganum. Síðar samdi svo Oliver Heiðarsson við KA eftir að hafa verið orðaður við Val.
Viktor nafngreindi ekki Jóhann Berg í þættinum en sterklega var ýjað að því að um Jóhann Berg væri að ræða.
Jóhann hefur spilað með Breiðabliki, AZ Alkmaar, Charlton, Burnley, Al-Orobah og Al Dhafra á sínum ferli. Hann á að baki 102 landsleiki.