Þrír leikmenn Bayern München eru í liði vikunnar í Meistaradeild Evrópu og þá var Michael Olise valinn besti leikmaðurinn, en þetta kemur fram á vef UEFA.
Olise skoraði frábært mark í mögnuðum 4-3 sigri á Real Madrid sem fleytti Bæjurum áfram í undanúrslitin.
UEFA valdi hann besta leikmann vikunnar í 8-liða úrslitunum og eðlilega í lið vikunnar.
Hann, Dayot Upamecano og Joshua Kimmich eru fulltrúar Bayern í liðinu. Ousmane Dembele og Marquinhos, leikmenn Paris Saint-Germain, eru í liðinu.
Atlético Madríd er einnig með tvo fulltrúa í þeim Marcos Llorente og Juan Musso. Eduardo Quaresma, varnarmaður Sporting, er í liðinu ásamt Martin Zubimendi, leikmanni Arsenal, og Arda Güler, sem skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid gegn Bayern. Ferran Torres er eini fulltrúi Barcelona sem datt út fyrir Atlético.
Introducing the Team of the Week ?@cryptocom | #UCLTOTW pic.twitter.com/I3ImLLiBhT
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) April 16, 2026



