Tvær breytingar hjá Víkingi
Klukkan 17:30 hefst leikur KA og Víkings á Greifavellinum á Akureyri. Leikurinn er liður í 2. umferð Bestu deildarinnar og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Lestu um leikinn: KA 0 - 0 Víkingur R.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir eina breytingu á sínu liði frá leiknum gegn Stjörnunni. Hallgrímur Mar Steingrímsson er ekki með KA í dag og inn í liðið kemur Valdimar Logi Sævarsson.
Uppfært: Hallgrímur Jónasson segir í viðtali við Sýn að Hallgrímur Mar sé aumur í mjöðminni en ætti að vera orðinn klár í næsta leik.
Sveinn Margeir Hauksson er á láni frá Víkingi og ákvæði er í samningnum sem gerir það ekki aðlaðandi fyrir KA að spila honum í dag og er hann því utan hóps. Oliver Heiðarsson er hins vegar í fyrsta sinn í hóp eftir komuna frá Króatíu.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Breiðabliki. Tarik Ibrahimagic kemur inn fyrir Helga Guðjónsson og Erlingur Agnarsson byrjar í stað Stígs Diljans Þórðarsonar. Helgi tekur sér sæti á bekknum en Stígur er ekki með í dag. Miðað við skýrsluna á vef KSÍ eru einungis sjö á bekknum hjá Víkingi. Aron Elís Þrándarson er áfram utan hóps en Róbert Orri Þorkelsson, Ármann Ingi Finnbogason og Jóhannes Kristinn Bjarnason koma inn á bekkinn. Þeir Sveinn Gísli Þorkelsson og Davíð Örn Atlason detta úr hópnum.
Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Jeppe Pedersen
14. Danijel Dejan Djuric
16. Jakob Héðinn Róbertsson
17. Samuel Karl Kroon
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
44. Valdimar Logi Sævarsson
Byrjunarlið Víkingur R.:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
25. Valdimar Þór Ingimundarson


