Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Senesi og fleiri orðaðir við Liverpool
Powerade
Argentínumaðurinn Marcos Senesi.
Argentínumaðurinn Marcos Senesi.
Mynd: EPA
Givairo Read til City?
Givairo Read til City?
Mynd: EPA
Liverpool er orðað við þrjá leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og Manchester City er með augastað á hollenskum bakverði. Þetta og ýmislegt fleira í slúðurpakka dagsins.

Liverpool leiðir baráttuna um argentínska varnarmanninn Marcos Senesi (28) en samningur hans við Bournemouth rennur út í sumar. (i paper)

Manchester City fylgist grannt með hollenska bakverðinum Givairo Read (19) hjá Feyenoord en Bayern München hefur einnig áhuga á honum. (Sky Sports)

Liverpool hefur áhuga á enska kantmanninum Anthony Gordon (25) hjá Newcastle og senegelska framherjanum Iliman Ndiaye (26) hjá Everton. Félagið hyggst efla sóknarmöguleika sína fyrir næsta tímabil. (Teamtalk)

Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea og Manchester United, gæti tekið við Newcastle ef félagið rekur Eddie Howe. (TalkSport)

Bournemouth er komið vel á veg í viðræðum við Marco Rose (49) fyrrum stjóra Borussia Dortmund og RB Leipzig. Þýski stjórinn er sem stendur án félags. (Telegraph)

Chelsea og Newcastle eru meðal félaga sem hafa áhuga á þýska varnarmanninum Karim Coulibaly (18) hjá Werder Bremen. (Bild)

Juventus hefur áhuga á brasilíska markverðinum Alisson (33) hjá Liverpool og portúgalska miðjumanninum Bernardo Silva (31) hjá Manchester City. Búist er við miklum breytingum á leikmannahópi Juve í sumar. (Corriere dello Sport)

Newcastle United býr sig undir að bjóða aftur í miðvörðinn Ousmane Diomande (22) hjá Sporting Lissabon. Portúgalska félagið mun ekki taka tilboði undir 40 milljónum punda. (Football Insider)

Spænski varnarmaðurinn Jacobo Ramon (21) hjá Como hefur vakið áhuga margra félaga, þar á meðal Arsenal og Chelsea. (Teamtalk)

Arsenal er tilbúið að selja brasilíska framherjann Gabriel Jesus (29) og þýska sóknarmanninn Kai Havertz (26) í sumar til að geta keypt Julian Alvarez (26) frá Atletico Madrid. (Caughtoffside)
Slapp
banner