Í hlaðvarpsþættinum ChessAfterDark var sagt að Valur hefði reynt að fá landsliðsmanninn Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg var sterklega orðaður við Breiðablik en staðan breyttist og hann hætti við að skrifa undir í Kópavoginum.
Gareth Owen, yfirmaður fótboltamála hjá Val, er í löngu viðtali sem birtist hér á Fótbolta.net í morgun en þar segir hann það af og frá að Valur hefði reynt við Jóhann.

Er rétt að þið hafið boðið Jóhanni Berg Guðmundssyni samning og laun upp á 2 milljónir líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum?
„Nei það er ekki rétt. Við höfum aldrei talað við Jóhann Berg sem er auðvitað frábær leikmaður en ekki það sem við erum að leita að núna. Það er margt sem er sagt og skrifað sem er algjört bull. Þetta er eitt af því," segir Gareth Owen.