Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   fim 16. apríl 2026 14:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Halldór Snær verður í markinu - „Svona 3500 markmenn sendir til okkar"
Halldór Snær Georgsson
Halldór Snær Georgsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr Ólafsson
Arnar Freyr Ólafsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar og Halldór.
Arnar og Halldór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Snær Georgsson mun standa vaktina í marki KR eftir meiðsli Arnars Freys Ólafssonar. Þetta segir þjálfari liðsins, Óskar Hrafn Þorvaldsson. þjálfari KR, í samtali við Fótbolta.net í dag. Arnar, sem byrjaði leikinn gegn Keflavík á sunnudag, verður frá næstu fjóra mánuðina eftir að hafa slitið sin í hné.

KR kallaði Sigurpál Sören Ingólfsson til baka úr láni frá Ægi til að veita Halldóri samkeppni.

„Halldór er núna númer eitt," segir Óskar.

„Við höfum ekkert verið að skoða, en það hafa hins vegar verið sendir til okkar svona 3500 markmenn, þannig við höfum sæmilega skýra mynd af því hverjir eru lausir og hverjir ekki, en við höfum ekki verið að leitast eftir markmönnum."

Býstu við þvi að staðan verði endurmetin rétt fyrir gluggalok, eða er Dóri bara ykkar maður?

„Ég er maður sem sé glasið hálf fullt og trúi því að Dóri muni leysa þetta verkefni með miklum sóma. Ég á alls ekki von á því (að markaðurinn verði skoðaður)."

Arnar einstakur
Breytist leikstíll liðsins eftir þessi meiðsli Arnars?

„Það stendur náttúrulega engin markmaður í Evrópu jafnhátt og hann, hann er einstakur karakter. Með mikilli virðingu fyrir öllum leikmönnum sem ég hef þjálfað, þá er hann langduglegasti og sennilega opnasti einstaklingur sem ég hef þjálfað. Auðvitað munum við ekki spila eins með Halldór í markinu og með Arnar. En Dóri er ekki að stíga inn á völlinn í fyrsta skiptið, hann spilaði allt síðasta tímabil. Það verður öðruvísi áferð samt, það er alveg ljóst, en engar stórvægilegar breytingar."

Sýnt gríðarlegan karakter
Hefur þú séð einhverja breytingu á Dóra í vikunni eftir að ábyrgðin á honum jókst?

„Nei, ég hef bara séð mann sem hefur verið að berjast um Arnar um markmannsstöðuna, æft frábærlega og sýnt gríðarlegan karakter. Hann hefur ekki farið í fýlu og verið algjörlega til fyrirmyndar. Hann er búinn að vera virkilega flottur á æfingum í allan vetur og tekið samkeppnina og farið í hana. Ég hef ekki séð neina breytingu, hann hefur æft mjög vel og verið góður á æfingum. Ég trúi því að hann muni fara með það inn í leikinn á morgun," segir Óskar.

KR tekur á móti Þór klukkan 17:30 á morgun í 2. umferð Bestu deildarinnar.
Slapp
banner