Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   fim 16. apríl 2026 20:28
Brynjar Ingi Erluson
Selja 70 prósent hlut í Al Hilal - Hefur ekki áhrif á framtíð Newcastle
Kingdom Holding Company keypti 70 prósent hlut í Al Hilal í dag
Kingdom Holding Company keypti 70 prósent hlut í Al Hilal í dag
Mynd: PIF
Public Investments Funds (ríkissjóðurinn í Sádi-Arabíu) hefur selt 70 prósent hlut í sádi-arabíska félaginu Al Hilal en þetta kemur fram í tilkynningu sjóðsins í dag.

Ríkissjóðurinn tók yfir Al Hilal, Al Ahli, Al Nassr og Al Ittihad fyrir þremur árum og var markmiðið að koma þessum liðum í röð fremstu röð í Asíu, auka tekjur og til að styrkja og stækka sádi-arabísku deildina á heimsvísu.

Það hefur gengið mjög vel og mörg stór nöfn komið í deildina á síðustu árum.

Í dag greindi ríkissjóðurinn frá því að það væri búið að selja 70 prósent hlut í Al Hilal til Kingdom Holding Company (KHC) sem er rekið af milljarðamæringnum Prince Alwaleed Bin Talal, sem er meðlimur konungsfjölskyldunnar í Sádi-Arabíu.

Salan er í línu við yfirlýsingu ríkissjóðsins í síðustu viku þar sem greint var frá fimm ára áætlun um að hækka arðsemi og endurúthluta fjármagni innan hagkerfisins innanlands.

Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United er einnig í eigu PIF, en samkvæmt Sky Sports stendur ekki til að selja félagið og er sjóðurinn staðráðinn í að halda áfram að styðja Newcastle.

Samkvæmt erlendum miðlum er þó líklegt að PIF muni selja Al Nassr, Al Ahli og Al Ittihad á næstu árum.

Framtíð íþróttaeignasafns PIF hefur sætt mikilli gagnrýni síðan greint var frá því að sjóðurinn væri að íhuga það að hætta fjármögnun á LIV Golf-mótaröðinni, en hún hefur skilað milljarðatapi síðan hún var sett á laggirnar árið 2022.


Slapp
banner