Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 02. júlí 2019 20:09
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu fagnið: Morgan bauð upp á gott grín
Viðeigandi fagn hjá Alex Morgan
Viðeigandi fagn hjá Alex Morgan
Mynd: Getty Images
Bandaríska knattspyrnukonan Alex Morgan bauð upp á skemmtilegt fagn er hún skoraði annað mark liðsins gegn Englendingum.

Christen Press kom bandaríska liðinu yfir í leiknum en hún byrjaði í stað Megan Rapinoe, sem hafði fyrir leikinn í kvöld gert fimm mörk.

Ellen White skoraði svo sjötta mark sitt á mótinu er hún jafnaði fyrir enska landsliðið áður en Alex Morgan kom Bandaríkjunum yfir aftur.

Síðari hálfleikur var að hefjast en staðan er enn 2-1. Hægt er að sjá skemmtilegt fagn hér fyrir neðan en Morgan þykist drekka te og gerir þar grín að Englendingum sem er hálfgerður þjóðardrykkur þeirra.



Athugasemdir
banner
banner
banner