„Svekktur, þetta var mjög svekkjandi tap. Við tökum mjög góðan fyrri hálfleik og svo eitthvern veginn fer þetta frá okkur, mjög svekktur" sagði Úlfur Ágúst Björnsson leikmaður FH eftir 3-4 tap á heimavelli gegn Fram.
Lestu um leikinn: FH 3 - 4 Fram
Hvað gerist á milli fyrri hálfleiksins og seinni hálfleik?
„Ég bara í rauninni veit það ekki, við missum þrjú mörk á okkur á stuttum tíma og reynum að komast aftur. Við höfðum alveg sjensa til þess að bæta við áður en komast yfir eða jafna. Við hefðum átt að klára þennan leik."
Var klaufalegt að tapa svona?
„Já eiginlega. Mér fannst við spila vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Spiluðum eftir okkar gildum og sérstaklega það sem við erum að reyna að byggja upp á þessu tímabili. Þannig að þetta var drullu svekkjandi og að missa þetta þrjú eitt, þetta var mjög svekk."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan
























