Það var fimm leikjum að ljúka á sama tíma í efstu deild þýska boltans og voru merkileg úrslit sem litu dagsins ljós á Allianz Arena í München.
Þýskalandsmeistarar FC Bayern tóku þar á móti botnliði Heidenheim og tefldi Vincent Kompany fram varaliði til að hvíla lykilmenn fyrir heimaleikinn gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar sem er á dagskrá næsta miðvikudag.
Heidenheim stjórnaði ferðinni í fyrri hálfleik og voru gestirnir óheppnir að vera aðeins einu marki yfir í leikhlé. Leon Goretzka minnkaði muninn fyrir Bæjara skömmu fyrir leikhlé og gerði Kompany fjórfalda skiptingu í hálfleik.
Harry Kane, Luis Díaz, Michael Olise og Joshua Kimmich komu allir inn af bekknum og skoraði Goretzka jöfnunarmark skömmu síðar.
Bayern var talsvert sterkara liðið í síðari hálfleik en gestirnir börðust eins og ljón enda í harðri fallbaráttu á hinum enda stöðutöflunnar. Þeir fengu sín færi og skoraði Georgíumaðurinn Budu Zivzivadze sitt annað mark í leiknum til að endurheimta forystuna á 76. mínútu.
Bayern sótti stíft á lokamínútunum og tókst að setja jöfnunarmark afar seint í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 3-3. Diant Ramaj markvörður varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net þegar frábært skot Michael Olise fór af stönginni, í bakið á Ramaj og endaði í netinu.
Þetta er dýrmætt stig fyrir botnliðið þar sem aðeins þrjú stig skilja þrjú neðstu lið deildarinnar að. Heidenheim er þó áfram á botninum og eiga St. Pauli og Wolfsburg sitthvorn leikinn til góða á morgun.
Liðin þrjú eru að keppast um 16. sæti deildarinnar sem veitir þátttökurétt í umspilsleik um síðasta lausa sætið í efstu deild.
Í öðrum leikjum dagsins skildu Hoffenheim og Stuttgart jöfn í gríðarlega fjörugum sex marka leik. Liðin eru í harðri baráttu um síðasta meistaradeildarsætið og skoraði Króatinn seigi Andrej Kramaric tvennu fyrir Hoffenheim.
Heimamenn leiddu 3-1 í upphafi síðari hálfleiks en Eren Demirovic minnkaði muninn áður en Atakan Karazor fékk beint rautt spjald fyrir hættulega tæklingu. Tíu leikmenn Stuttgart gáfust ekki upp og náðu að pota inn jöfnunarmarki seint í uppbótartíma.
Hoffenheim og Stuttgart eru jöfn í fjórða sæti með 58 stig eftir 32 umferðir.
Sambandsdeildarbaráttulið Eintracht Frankfurt tapaði þá óvænt heimaleik gegn Hamburger SV sem gefur Freiburg tækifæri til að stela sjöunda sætinu á morgun og þá gerði Köln jafntefli við Union Berlin en Ísak Bergmann Jóhannesson var fjarverandi vegna uppsafnaðra spjalda.
Bayer Leverkusen og RB Leipzig eigast við í æsispennandi meistaradeildarbaráttuslag í lokaleik dagsins.
Werder Bremen 1 - 3 Augsburg
0-1 Anton Kade ('24 )
0-2 Anton Kade ('45+3)
1-2 Romano Schmid ('64 )
1-3 Kristijan Jakic ('69 )
Union Berlin 2 - 2 Koln
0-1 Marius Bulter ('33 )
0-2 Said El Mala ('61 )
1-2 Tom Rothe ('73 )
2-2 Livan Burcu ('89 )
Hoffenheim 3 - 3 Stuttgart
1-0 Andrej Kramaric ('8 )
1-1 Chris Fuhrich ('20 )
2-1 Bazoumana Toure ('23 )
3-1 Andrej Kramaric ('49 )
3-2 Ermedin Demirovic ('64 )
3-3 Tiago Tomas ('90+5)
Rautt spjald: Atakan Karazor, Stuttgart ('69)
Eintracht Frankfurt 1 - 2 Hamburger
1-0 Can Uzun ('48 )
1-1 Albert Gronbaek ('51 )
1-2 Fabio Vieira ('59 )
Rautt spjald: Rasmus Kristensen, Eintracht Frankfurt ('90+12)
Bayern 3 - 3 Heidenheim
0-1 Budu Zivzivadze ('22 )
0-2 Eren Dinkci ('31 )
1-2 Leon Goretzka ('44 )
2-2 Leon Goretzka ('57 )
2-3 Budu Zivzivadze ('76 )
3-3 Diant Ramaj ('90+10 , sjálfsmark)



