Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 12:40
Ívan Guðjón Baldursson
De Zerbi vill ekki vera í kringum tapara
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, nýr þjálfari Tottenham, telur mikilvægt að breyta hugarfarinu innan félagsins fyrir lokaumferðir tímabilsins.

Tottenham er í óvæntri fallbaráttu eftir mikið vonbrigðatímabil. Liðið er í fallsæti sem stendur, tveimur stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir úrvalsdeildartímabilinu.

Liðið vann sinn fyrsta deildarleik á árinu gegn botnliði Wolves um síðustu helgi og hefur De Zerbi trú á að sínir menn geti forðast fall.

„Erfiðasta áskorunin þessa stundina er að slökkva á þessari rödd sem lifir innra með okkur, innra með leikmönnum, starfsfólki og stuðningsfólki. Þetta er neikvæð rödd sem gefur neikvæðar hugsanir. Hún segir til dæmis að við séum óheppnir útaf meiðslum. Við misstum Xavi Simons í meiðsli og hann hefur verið einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins síðustu leiki," sagði De Zerbi á fréttamannafundi í dag. Hann byrjaði fundinn á fjögurra mínútu langri einræðu.

„Hún segir að læknateymið okkar sé ekki nægilega gott, grasið á vellinum okkar ekki nógu gott, æfingasvæðið ekki nógu gott. Hún segir að það sé ómögulegt fyrir okkur að vinna tvo leiki í röð útaf því að vorum ekki búnir að vinna leik árið 2026 þar til um síðustu helgi. Mér þykir þetta allt vera neikvætt bull.

„Ætlum við að gráta og falla niður um deild? Við erum ekki fallnir. Við þurfum að vera tilbúnir til að deyja á vellinum. Við verðum að berjast útaf því að við erum tveimur stigum á eftir West Ham.

„Við erum í viðkvæmri stöðu á erfiðum tímapunkti en það eru taparar sem gráta. Taparar hugsa neikvætt og ég vil ekki hafa fólk nálægt mér sem hefur þannig hugarfar."


Tottenham heimsækir Aston Villa á morgun og á svo leiki við Leeds United, Chelsea og Everton í lokaumferðunum. Liðið er að reyna að forðast sitt fyrsta fall úr efstu deild síðan 1977.

De Zerbi er þriðji þjálfarinn sem tekur við Tottenham á tæpu ári eftir brottrekstur Ange Postecoglou í fyrra. Thomas Frank byrjaði tímabilið með Tottenham og svo var Igor Tudor ráðinn í febrúar.

   26.04.2026 08:00
Simons borinn af velli - HM í hættu

Slapp
banner
banner