Brasilíski kantmaðurinn Hulk verður 40 ára gamall í sumar en sýnir engin merki um að hægja á sér.
Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í sterku liði Atlético Mineiro í Brasilíu undanfarin ár en er núna að skipta yfir til Fluminense.
Hulk hefur komið að 196 mörkum í 309 leikjum á fimm og hálfu ári hjá Atlético þrátt fyrir hækkandi aldur.
Hulk er búinn að samþykkja eins og hálfs árs samning við Fluminense sem gildir út 2027.
Fluminense er afar sögufrægt lið í Brasilíu og situr í þriðja sæti efstu deildar sem stendur.
A despedida de um ídolo eterno! ????
— Atlético (@Atletico) May 2, 2026
Daqui até a #E7ERNIDADE! #E7ernoVingador ????????? pic.twitter.com/IxV2g9SPp0





