Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona er spáin fyrir 3. deildina
Björn Daníel Sverrisson er þjálfari Sindra.
Björn Daníel Sverrisson er þjálfari Sindra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víðismönnum er spáð efsta sætinu.
Víðismönnum er spáð efsta sætinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag hefst keppni í 3. deild karla í hlaðvarpsþættinum Harkið var farið yfir spá fyrir deildina.

Þeir félagar spá því að Víðir og KV muni fara upp úr deildinni en það verði Sindri og KÁ sem fari niður. Þess má geta að þjálfari Sindra er Björn Daníel Sverrisson.

Svona er spáin fyrir 3. deildina:
1. Víðir
2. KV
3. Tindastóll
4. Reynir S.
5. Höttur
6. Ýmir
7. Augnablik
8. KH
9. Árbær
10. KF
11. Sindri
12. KÁ

Fyrsta umferðin í 3. deild:

laugardagur 2. maí
14:00 KV-KÁ (KR-völlur)
14:00 Augnablik-Víðir (Fífan)
14:00 KH-Sindri (Valsvöllur)
14:00 Tindastóll-Ýmir (Sauðárkróksvöllur)
15:00 Reynir S.-Árbær (Nettóhöllin - gervigras)
16:00 Höttur-KF (Rafey-völlurinn)

Hægt er að hlusta á umræðuna um öll liðin í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Harkið - Maraþon upphitun fyrir 2. og 3. deild
Slapp
banner
banner
banner