Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 16:25
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Stórsigur í Villarreal - Varalið Atlético vann í Valencia
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænska boltanum þar sem Villarreal rúllaði yfir fallbaráttulið Levante.

Georgíumaðurinn Georges Mikautadze skoraði eina markið í fyrri hálfleik og náði Carlos Espí að gera jöfnunarmark í upphafi síðari hálfleiks.

Heimamenn í Villarreal skiptu þá um gír og skoruðu fjögur mörk á síðasta hálftíma leiksins til að innsigla flottan sigur. Mikautadze skoraði annað mark og þá átti Nicolas Pépé, næstdýrasti leikmaður í sögu Arsenal, mark og stoðsendingu. Lokatölur 5-1.

Villarreal siglir áfram lygnan sjó í þriðja sæti La Liga en þetta tap kemur sér illa fyrir Levante sem er þremur stigum frá öruggu sæti með fjóra leiki eftir óspilaða.

Diego Simeone tefldi þá fram varaliði Atlético Madrid á útivelli gegn Valencia þar sem hann er að hvíla aðalliðið fyrir seinni leikinn í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á útivelli gegn Arsenal á þriðjudagskvöldið.

Atlético var sterkara liðið í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora svo staðan hélst markalaus. Síðari hálfleikurinn var mjög jafn og fengu bæði lið færi til að skora en gestirnir nýttu sín betur. Iker Luque og Miguel Cubo skoruðu mörkin, lokatölur 0-2.

Atlético siglir lygnan sjó í fjórða sæti spænsku deildarinnar á meðan Valencia er fimm stigum frá fallsæti og fimm stigum frá evrópusæti í ótrúlega jafnri deild.

Villarreal 5 - 1 Levante
1-0 Georges Mikautadze ('38 )
1-1 Carlos Espi ('51 )
2-1 Alberto Moleiro ('62 )
3-1 Georges Mikautadze ('68 )
4-1 Tajon Buchanan ('87 )
5-1 Nicolas Pepe ('90 )

Valencia 0 - 2 Atletico Madrid
0-1 Iker Luque ('74 )
0-2 Miguel Cubo ('82 )
Slapp
banner
banner