Brentford hefur verið að gera frábæra hluti á enska úrvalsdeildartímabilinu og er í harðri baráttu um sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar.
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greinir frá því að Brentford sé búið að ákveða að virkja eins árs framlengingu á samningum hjá Mathias Jensen og Rico Henry.
Jensen og Henry verða samningslausir í sumar en þeir eru með sérstakt ákvæði í samningum sínum við félagið sem gerir Brentford kleift að framlengja um eitt ár.
Jensen er 30 ára miðjumaður sem hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í byrjunarliði Brentford. Hann hefur verið hjá Brentford í sjö ár og er með 31 landsleik að baki fyrir Danmörku.
Henry er 28 ára vinstri bakvörður sem hefur verið hjá Brentford í tíu ár en hefur verið mikið fjarverandi vegna erfiðra meiðsla síðustu ár. Hann er búinn að spila 30 keppnisleiki á tímabilinu en hefur misst af síðasta mánuði vegna meiðsla.
Samanlagt eiga þeir 510 leiki að baki fyrir Brentford og eru mikilvægir leikmenn fyrir félagið. Báðir eiga þeir möguleika á að fá lengri samninga hjá félaginu í sumar eða á næstu leiktíð.
Jensen og Henry eru tveir af aðeins þremur leikmönnum Brentford sem áttu að renna út á samningi í sumar. Sá þriðji er Josh Dasilva, sem er líka með eins árs framlengingarmöguleika í sínum samningi.
Dasilva er búinn að vera frá keppni allt tímabilið vegna slæmra meiðsla en hann snéri loks aftur á varamannabekkinn hjá Brentford í síðustu umferð.



