Framtíð brasilíska miðjumannsins Casemiro er óljós þar sem samningur hans við Manchester United rennur út í sumar.
Áform Casemiro um að hefja nýjan kafla á ferlinum voru staðfest opinberlega í janúar með tilkynningu um að leikmaðurinn fengi ekki nýjan samning hjá Rauðu djöflunum.
Michael Carrick tók við sem bráðabirgðaþjálfari Man Utd í janúar og tókst að gjörsnúa slæmu gengi liðsins við á skömmum tíma. Casemiro hefur leikið lykilhlutverk undir stjórn Carrick og hafa stuðningsmenn kallað eftir því að hann skrifi undir nýjan samning við félagið þrátt fyrir tilkynninguna sem var gefin út í janúar.
Líklegasti áfangastaður Brassans er stjörnum prýtt lið Inter Miami. Lionel Messi, Luis Suárez, Rodrigo De Paul og Sergio Reguilón eru meðal leikmanna liðsins sem er í leit að nýjum miðjumanni til að fylla í skarðið fyrir Sergio Busquets.
Casemiro er efstur á óskalista Inter og hefur leikmaðurinn mikinn áhuga á liðinu. Hann er með tilboð á borðinu frá öllum heimshornum, þar á meðal frá félagsliðum í Brasilíu og Sádi-Arabíu.
28.03.2026 22:37
Inter Miami í viðræðum um Casemiro




