Breiðablik vann 2-1 endurkomusigur á Eyjamönnum í Veestmannaeyjum í dag. Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara liðsins eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Breiðablik
„VIð byrjum hann illa, fengum á okkur mark eftir nokkrar sekúndur. Það var það síðasta sem við vildum, að kveikja í Eyjamönnum. Við vinnum okkur hægt og bítandi inn í þetta, erum að stýra ferðinni án þess að opna eitthvað sérstaklega mikið," sagði Ólafur Ingi.
„Við gerðum okkur sjálfum erfitt fyrir. Án þess að ég ætli að vera með afsakanir eða kvarta yfir einhverju þá finnst mér að á svona flottum gervigrasvelli að það eigi að bleyta völlinn almennilega fyrir leik og í hálfleik þannig að boltinn rúlli hraðar og við fáum hærra tempó í leikinn. Völlurinn var stamur og þurr sem mér fannst hafa áhrif á leikinn."
Það hefur verið allskonar bras fyrir lið að ferðast til og frá Eyjum í sumar en Blikar ferðuðust með þyrlu til Eyja í dag.
„Það lagðist mjög vel í okkur. Við skoðuðum allar mögulegar leiðir. Þetta er til skammar hvernig þetta hefur verið, mér finnst hrikalegt fyrir Eyjamenn hvernig er komið fyrir eyjunni fögru að þetta sé staðan. Við skoðuðum hvað væri hentugast fyrir okkur og þetta var niðurstaðan og sem betur fer tökum við þrjú stig heim."
























