Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 13:31
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Ipswich beint upp - Wrexham missir af umspili
Mynd: Ipswich Town
Mynd: Hull City
Lokaumferð Championship deildarinnar er lokið og því er ljóst hvaða lið fara beint upp í ensku úrvalsdeildina og hvaða lið fara í umspilið verðmæta.

Ipswich Town er búið að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu eftir þægilegan sigur á QPR í dag. Jaden Philogene, Kasey McAteer og George Hirst skoruðu mörkin.

Í umspilsbaráttunni er það helst að frétta að sögufrægt lið Wrexham missir af umspilssæti eftir að hafa gert jafntefli á heimavelli gegn Middlesbrough, sem fer í umspil.

Wrexham og Middlesbrough gerðu 2-2 jafntefli í jöfnum slag þar sem öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik.

Hull City tryggir sér síðasta lausa umspilssætið þökk sé framherjanum Oli McBurnie sem skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 endurkomusigri gegn Norwich.

Topplið Coventry rúllaði yfir Watford og þá unnu Millwall og Southampton sína leiki og fara í fjögurra liða umspilið ásamt Hull og Middlesbrough.

Fallbaráttan var þegar ákveðin fyrir lokaumferðina en það vekur athygli að botnlið Sheffield Wednesday, sem er nýbúið að tilkynna yfirvofandi eigendaskipti, vann sinn leik og endar því tímabilið með 0 stig.

Sheffield fékk í heildina dæmd 18 mínusstig á mjög erfiðu tímabili.

Millwall 2 - 0 Oxford United
1-0 Femi Azeez ('34 )
2-0 Femi Azeez ('48 )

Hull City 2 - 1 Norwich
0-1 Mohamed Toure ('26 )
1-1 Oli McBurnie ('28 , víti)
2-1 Oli McBurnie ('67 )

Portsmouth 1 - 1 Birmingham
1-0 Adrian Segecic ('8 )
1-1 August Priske ('19 )

Watford 0 - 4 Coventry
0-1 Ellis Simms ('19 )
0-2 Ellis Simms ('43 )
0-3 Ellis Simms ('58 )
0-4 Victor Torp ('85 )

Wrexham 2 - 2 Middlesbrough
0-1 Tommy Conway ('4 )
1-1 Josh Windass ('28 )
2-1 Toby Samuel Smith ('41 )
2-2 David Strelec ('44 )

Sheffield Wed 2 - 1 West Brom
1-0 Nathaniel Chalobah ('36 )
2-0 Liam Palmer ('40 )
2-1 Karlan Grant ('82 )

Ipswich Town 3 - 0 QPR
1-0 George Hirst ('3 )
2-0 Jaden Philogene ('9 )
3-0 Kasey McAteer ('85 )

Derby County 1 - 2 Sheffield Utd
1-0 Sammie Szmodics ('5 )
1-1 Thomas Cannon ('62 )
1-2 Sydie Peck ('69 )


Bristol City 2 - 0 Stoke City
1-0 Delano Burgzorg ('1 )
2-0 Sam Bell ('88 )

Swansea 3 - 1 Charlton Athletic
1-0 Adam Idah ('74 )
1-1 Miles Leaburn ('79 )
2-1 Adam Idah ('82 )
3-1 Leo Walta ('88 )

Preston NE 1 - 3 Southampton
0-1 Taylor Harwood-Bellis ('12 )
0-2 Ross Stewart ('47 )
1-2 Lewis Dobbin ('61 )
1-3 Cyle Larin ('90 )

Blackburn 0 - 1 Leicester City
0-1 Stephy Mavididi ('78 )
Slapp
banner
banner
banner