24 ára bið á enda
Akureyri eins og hún leggur sig er undir er Þór og KA mætast á Vísvellinum á Akureyri í dag en liðin eigast við í 5. umferð Bestu deildar karla. Viðureignin er sú fyrsta á milli liðanna í efstu deild i 24 ár og hefur leiksins verið beðið með mikilli eftirvæntingu.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 0 KA
Þjálfarar beggja liða hafa opinberað byrjunarlið sín og má sjá þau hér að neðan.
Sigurður Höskuldsson gerir tvær breytingar á liði sínu frá tapinu í Kópavogi. Ásbjörn Líndal Arnarsson og Sverrir Páll Ingason fá sér sæti á bekknum fyrir þá Atla Sigurjónsson og Ragnar Óla Ragnarsson.
KA gerir fjórar breytingar frá 2-1 tapinu gegn Keflavík á dögunum. Kári Gautason, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Markús Máni Pétursson og Birgir Baldvinsson koma inn í byrjunarlið þeirra á kostnað Guðjóns Ernis Hrafnkelssonar, Sveins Margeirs, Diego Montiel og Valdimars Loga Sævarssonar
Byrjunarlið Þór :
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Sebastian Haugland
11. Isaac Atanga
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
19. Ragnar Óli Ragnarsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Christian Greko Jakobsen
Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson
3. Kári Gautason
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Jeppe Pedersen
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
14. Danijel Dejan Djuric
15. Oliver Heiðarsson
17. Samuel Karl Kroon
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)


