Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. desember 2017 15:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Charlie Austin bjargaði stigi fyrir Southampton
Charlie Austin skoraði jöfnunarmark Southampton.
Charlie Austin skoraði jöfnunarmark Southampton.
Mynd: Getty Images
Bournemouth 1 - 1 Southampton
1-0 Ryan Fraser ('42 )
1-1 Charlie Austin ('61 )

Jafntefli var niðurstaðan þegar Bournemouth og Southampton áttust við í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Fyrir leikinn í dag var Bournemouth í 16. sæti með tveimur stigum minna en dýrlingarnir sem voru í 12. sæti. Það var hart barist enda mjög lítið sem skildi liðin að í töflunni.

Bournemouth náði forystunni rétt fyrir hálfleik og leiddi í nokkurn tíma, fram á 61. mínútu en þá jafnaði Charlie Austin fyrir gestina.

Lokatölur 1-1, eitt stig á bæði lið. Það munar því enn tveimur stigum á liðunum, Southampton er nú í 11. sæti og Bournemouth í því 14..
Athugasemdir
banner