Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 12:02
Brynjar Ingi Erluson
Verður áfram varafyrirliði Chelsea
Mynd: EPA
Enzo Fernandez, varafyrirliði Chelsea, verður ekki sviptur varafyrirliðahlutverkinu vegna ummæla sem hann lét falla í viðtali á LuzuTV á dögunum.

Argentínumaðurinn var settur í tveggja leikja agabann fyrir að daðra við Real Madrid í viðtalinu, en hann talaði um áhuga sinn á að búa í Madríd og sagði Luka Modric og Toni Kroos átrúnaðargoð sín.

Liam Rosenior, stjóri Chelsea, var vonsvikinn með Enzo og ákvað ásamt stjórninni að setja hann í tveggja leikja agabann.

Umboðsmaður Enzo hefur gagnrýnt Chelsea fyrir þessi vinnubrögð og segir ekki hægt að réttlæta bannið.

Enskir miðlar hafa þá talað um ósætti innan klefans og verið rætt hvort það ætti að svipta Enzo hlutverki fyrirliða en Rosenior segir það ekki vera til umræðu.

„Enzo er enn hluti af leiðtogahópnum. SJáum til hvað gerist eftir leikinn gegn Manchester City, en ég mun ekki svipta hann neinu því hann á það ekki skilið,“ sagði Rosenior.
Slapp
banner
banner