Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   mán 04. maí 2026 22:27
Brynjar Ingi Erluson
Henry vill ekki fagna of snemma - „Hef áhyggjur af leiknum gegn West Ham“
Mynd: EPA
Thierry Henry, fyrrum leikmaður Arsenal, segir titilbaráttunni langt í frá lokið þrátt fyrir úrslit kvöldsins.

Arsenal steig stórt skref í átt að Englandsmeistaratitlinum er aðal keppinautur þeirra í Manchester City gerði óvænt 3-3 jafntefli við Everton á útivelli.

Nú er Arsenal með fimm stiga forystu, en Man City getur mest komist tveimur stigum á eftir þeim með leikinn sem liðið á til góða.

Henry segir að leikmenn Arsenal megi ekki hugsa núna að þeir geti tapað stigum bara af því Man City gerði það.

„Ég myndi ekki hugsa núna 'við höfum efni á því að tapa stigum' ef ég væri Arsenal, en þetta er aftur komið í þeirra hendur. Það er staðreynd.“

„Ég ætla að halda mig við mitt og ekki fagna of snemma. Þetta er ekki búið,“ sagði Henry.

Arsenal heimsækir fallbaráttulið West Ham í næstu umferð sem verður gríðarlega erfitt verkefni fyrir Arsenal.

„Man City tapaði tveimur stigum en þú getur ekki farið að hugsa að þú getir kannski gert það líka. Það er ekkert kannski í þessu.“

„Ég hef áhyggjur af West Ham leiknum eins og ég hafði áhyggjur fyrir hönd City gegn Everton í kvöld,“
sagði Henry.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 23 7 5 67 26 +41 76
2 Man City 35 21 9 5 69 32 +37 72
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 35 17 7 11 48 44 +4 58
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 10 12 52 46 +6 52
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 35 13 9 13 44 44 0 48
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 35 13 6 16 49 51 -2 45
14 Leeds 35 10 13 12 47 52 -5 43
15 Crystal Palace 34 11 10 13 36 42 -6 43
16 Nott. Forest 35 11 9 15 44 46 -2 42
17 Tottenham 35 9 10 16 45 54 -9 37
18 West Ham 35 9 9 17 42 61 -19 36
19 Burnley 35 4 8 23 35 71 -36 20
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner