,,Þetta eru gríðarleg vonbrigði," sagði Magnús Gylfason þjálfari Vals eftir 3-0 tap liðsins gegn Breiðabliki í dag. Tapið gerði út um Evrópuvonir Valsara.
Fyrsta mark Blika kom úr vítaspyrnu eftir að dæmd var hendi á Sigurð Egil Lárusson.
Fyrsta mark Blika kom úr vítaspyrnu eftir að dæmd var hendi á Sigurð Egil Lárusson.
,,Hann segist ekki hafa fengið hann í hendina. Hann dúndraði í bakið á honum segir hann og það er ömurlegt að lenda í svona í úrslitaleik."
Magnús vill ekki staðfesta hvort hann mun hætta með lið Vals eftir tveggja ára starf.
,,Ég er löngu búinn að gera upp minn hug en við eigum eftir að setjast niður eftir mót," sagði Magnús.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















