ÍR og Dalvík/Reynir unnu góða sigra í undirbúningi fyrir Íslandsmótið í dag.
ÍR-ingar unnu flottan 3-0 sigur á Ægi. Bergvin Fannar Helgason, Stefán Pálsson og Sæþór Ívan Viðarsson gerðu mörk ÍR.
Liðin eigast tvisvar við í Lengjudeildinni í sumar en Ægir vann 2. deild á meðan ÍR-ingar höfnuðu í 6. sæti Lengjudeildarinnar.
Dalvík/Reynir vann þá KF, 3-0. Freyr Jónsson, Máni Dalstein Ingimarsson og Hektor Bergmann Garðarsson gerðu mörkin fyrir Dalvík/Reyni.
Tímabilið hjá Dalvík/ hefst 2. maí en liðið leikur í 2. deild á meðan KF spilar í 3. deild.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet

