Alejandro Garnacho gekk til liðs við Chelsea frá Man Utd fyrir 40 milljónir punda síðasta sumar.
Bróðir Garnacho sagði að Ruben Amorim, þáverandi stjóri Man Utd, hafi hent Garnacho undir rútuna eftir tap liðsins gegn Tottenham í úrslitum Evrópudeildarinnar þar sem sá argentíski kom inn á sem varamaður.

Þá setti hann mynd af sér á samfélagsmiðla áður en hann yfirgaf félagið í Aston Villa treyju merktri Marcus Rashford. Garnacho var spurður að því hvort hann sæi eftir því hvernig hann yfirgaf United.
„Já kannski því ég elskaði félagið. Þeir gáfu mér sjálfstraust frá upphafi. Þeir náðu í mig í akademíuna frá Spáni og svo fór ég í aðalliðið. Þetta voru fjögur eða fimm ár og mikil ást frá öllum. Ég var bara tvítugur en í mínum huga þurfti ég að spila alla leiki. Þetta er líka á mér, ég byrjaði að gera nokkra slæma hluti," sagði Garnacho.
„Stundum eigum við góð og slæm augnablik, ég er stoltur af því að vra hér en ég hef ekkert slæmt að segja um Man Utd, engan hjá félaginu eða liðsfélagana. Þetta var bara eitthvað sem breyttist í lífinu og lífið heldur áfram."