Alvaro Arbeloa, stjóri Real Madrid, var pirraður eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Girona í gær.
Honum fannst að Kylian Mbappe hafi átt að fá vítaspyrnu undir lok leiksins þegar Vitor Reis gaf honum olnbogaskot með þeim afleiðingum að það byrjaði að blæða í andlitinu á honum.
Honum fannst að Kylian Mbappe hafi átt að fá vítaspyrnu undir lok leiksins þegar Vitor Reis gaf honum olnbogaskot með þeim afleiðingum að það byrjaði að blæða í andlitinu á honum.
„Þetta er víti hérna og á tunglinu. Hvorki ég né einhver annar skilur þetta, VAR stígur inn í þegar því hentar. Ég talaði um þetta í gær, þetta staðfestir það. Mbappe fékk á sig brot fyrir minni sakir í fyrri hálfleik. Við höfum átt í mörgum vandræðum með dómara. Með þennan leik, á Mallorca. Þetta er sama gamla sagan," sagði Arbeloa.
Real Madrid er sex stigum á eftir toppliði Barcelona sem á leik til góða gegn Espanyol í dag.
A ver si gilipollas, ahora solo falta que digas que la brecha,se la ha hecho Mbappe a propósito.Que sinvergüenza eres Nosferatus. pic.twitter.com/7xEimEPwam
— [email protected] (@francis85483715) April 10, 2026



