Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   lau 11. apríl 2026 15:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Igor Thiago á hælunum á Haaland
Mynd: EPA
Igor Thiago skoraði tvennu í dramatísku jafntefli Brentford gegn Everton í dag.

Brentford fékk vítaspyrnu strax í upphafi þegar Jordan Pickford braut á Kevin Schade inn á teig. Thiago skoraði af öryggi úr vítinu. Beto jafnaði leikinn eftir tæplega hálftíma leik.

Thiago kom Brentford aftur yfir þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en það var smá heppnisstimpill yfir því marki. Michael Kayode átti skot sem fór í Thiago og boltinn breytti um stefnu og Pickford átti því ekki möguleika í að verja.

Thiago hefur skorað 21 mark í deildinni en aðeins Erling Haaland hefur skorað fleiri mörk eða 22. Hann hefur ekki skorað deildarmark í tvo mánuði.

Everton hefði getað jafnað metin stuttu síðar þegar það voru miklir samskiptaörðuleikar í öftustu línu Brentford en Caoimhin Kelleher kom boltanum frá að lokum.

Everton hélt áfram að pressa á vörn Brentford og undir lokin tókst heimamönnum ekki að koma boltanum frá. Hann barst til Kiernan Dewsbury-Hall sem skoraði og bjargaði stigi fyrir Everton.

Brentford er í 7. sæti og Everton í 8. sæti en bæði lið eru með 47 stig, stigi á eftir Chelsea og tveimur stigum á eftir Liverpool sem mætir Fulham á eftir.

Brighton er stigi á eftir Brentford og Everton eftir sigur á Burnley.

Mats Wieffer var hetja Brighton en hann skoraði bæði mörk liðsins. Burnley er 12 stigum frá öruggu sæti þegar 18 stig eru eftir í pottinum en óheppnin elti liðið í dag þar sem tvö mörk voru dæmd af vegna rangstöðu.

Brentford 2 - 2 Everton
1-0 Igor Thiago ('3 , víti)
1-1 Beto ('26 )
2-1 Igor Thiago ('76 )
2-2 Kiernan Dewsbury-Hall ('90 )

Burnley 0 - 2 Brighton
0-1 Mats Wieffer ('43 )
0-2 Mats Wieffer ('89 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 35 11 11 13 38 44 -6 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner