Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, segist opinn fyrir því að styrkja hópinn frekar fyrir tímabilið en það þurfi fyrst og fremst að fara yfir þau mál og taka skynsamlegar ákvarðanir.
Breiðablik er sagt í leit að styrkingu og var norski framherjinn Sebastian Heimvik Haugland meðal annars orðaður við félagið í síðasta mánuði, en hann endaði á því að semja við Þór á Akureyri.
Á dögunum voru Blikar sagðir vera að skoða danskan framherja en Ólafur sagðist ekki kannast við það.
Hann segist ánægður með hópinn sem hann er með í höndunum, en að Breiðablik sé alltaf tilbúið að skoða alla kosti.
„Eins og ég hef sagt áður þá er ég mjög ánægður með þann hóp sem við erum með í höndunum núna og marga unga leikmenn sem eru að berjast fyrir sæti sínu í liðinu en á sama tíma þá erum við samt opnir fyrir því ef það kemur eitthvað sem okkur líst vel á, þá skoðum við það, en eins og staðan er núna er ekkert í hendi. Við erum samt alveg opnir fyrir því að skoða hluti sem að 'meika sens' fyrir okkur,“ sagði Ólafur við Fótbolta.net.
Hann var þá áfram spurður út í framherjaleitina og sagði hana síður en svo einfalda.
„Já og nei. Við erum opnir fyrir styrkingu og það þarf að vera réttur prófíll af leikmanni, karakter og svo framvegis. Okkar 'criteria' er mjög há á því hvaða leikmaður kemur. Það þarf að vera örugg styrking á því sem við höfum þannig þetta er ekkert einfalt mál,“ sagði hann um mögulega styrkingu fremst á vellinum.


