Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 06. mars 2021 16:10
Aksentije Milisic
Guendouzi verður seldur frá Arsenal í sumar
Mynd: Getty Images
Matteo Guendouzi hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal. Mikel Arteta, stjóri liðsins, er sagður hafa ákveðið að selja miðjumanninn í sumar.

Guendouzi er á láni hjá Hertha Berlin á þessari leiktíð en þar hefur hann fengið mikið að spila.

Hann fór til Þýskalands eftir að hafa lent saman við Arteta í tvígang á síðasta ári og nú virðist engin leið til baka fyrir þennan 21 árs gamla leikmann.

Arsenal er talið vilja fá 25 milljónir punda fyrir leikmanninn og vildi Arteta selja Guendouzi á síðasta ári. Villareal hafði áhuga á að kaupa leikmanninn en þau skipti fóru hins vegar ekki í gegn.

Arteta tók við Arsenal í desember árið 2019 og tveimur mánuðum seinna lenti þeim saman í Dubai í æfingaferð. Þrátt fyrir það fékk Guendouzi tækifæri en mælirinn hjá Arteta fylltist í júní mánuði í fyrra þegar Guendouzi tók Neal Maupey, leikmann Brighton, hálstaki í tapleik.
Athugasemdir
banner
banner