Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Þjóðadeildin í dag - Meistarar síðustu tveggja keppna mætast í Stuttgart
Ousmane Dembele og Kylian Mbappe verða í liði Frakka
Ousmane Dembele og Kylian Mbappe verða í liði Frakka
Mynd: EPA
Frakkland og Spánn eigast við í síðari undanúrslitaleik Þjóðadeildar karla á MHP-leikvanginum í Stuttgart í Þýskalandi klukkan 19:00 í kvöld.

Portúgal kom sér í úrslit með því að leggja heimamenn í Þýskalandi að velli, 2-1, í gær.

Meistarar síðustu tveggja keppna mætast í kvöld. Spánverjar eru ríkjandi meistarar en Frakkar unnu árið 2021.

Það verður hörku barátta um sæti í úrslitum en sigurvegarinn mætir Portúgal á Allianz-leikvanginum á sunnudag.

Leikur dagsins:
19:00 Spánn - Frakkland
Athugasemdir