Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 05:55
Brynjar Ingi Erluson
U21 mætir Brasilíu í Egyptalandi í dag
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir Brasilíu í vináttulandsleik í Kairó í Egyptalandi klukkan 18:00 í kvöld.

Landsliðið átti upphaflega að mæta heimamönnum í Egyptalandi en af óviðráðanlegum orsökum þurftu þeir að draga lið sitt úr leik og komu Brasilíumenn inn í staðinn.

Margir efnilegir fótboltamenn eru í brasilíska hópnum en þar má nefna þá Pedro Lima hjá Wolves, Deivid Washington hjá Chelsea og Gabriel Moscardo sem er á mála hjá Paris Saint-Germain.

Seinni leikur Íslands verður gegn Kólumbíu og er sá leikur spilaður 8. júní.

Leikur dagsins:
18:00 Ísland - Brasilía (Petrosport Stadium)
Athugasemdir
banner