Niðurstaða í máli enska fótboltasambandsins gegn Lucas Paqueta, leikmanni West Ham og brasilíska landsliðsins, mun liggja fyrir á næstu fjórum til átta vikum.
Paqueta var á síðasta ári ákærður af enska fótboltsambandinu fyrir brot á veðmálareglum. Hann er sakaður um að hafa fengið viljandi áminningar til að hafa áhrif á veðmál.
Réttarhöldunum er nú formlega lokið og greinir Sky Sports frá því að það taki nefndina 4-8 vikur að komast að niðurstöðu.
Paqueta, sem er 27 ára gamall, hefur neitað sök og segist ætla að gera allt sem í hans valdi stendur til að hreinsa nafn sitt.
Brasiíumaðurinn spilaði allt tímabilið með West Ham en hann gæti mögulega hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið því ef hann verður fundinn sekur á hann yfir höfði sér lífstíðarbann frá fótbolta.
West Ham er alvarlega að íhuga það að gefa Brassanum lengra frí ef hann verður sýknaður í málinu, en það er sagt hafa verulegar áhyggjur af líðan miðjumannsins.
Athugasemdir