Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 23:06
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Flottar endurkomur og þægilegur sigur Gróttu
Ægismenn fagna gegn Vogamönnum
Ægismenn fagna gegn Vogamönnum
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Dalvík/Reynir vann Kormák/Hvöt
Dalvík/Reynir vann Kormák/Hvöt
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Bjöggi Stef skoraði í sigri Gróttu
Bjöggi Stef skoraði í sigri Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fannar Óli jafnaði fyrir Hauka undir lok leiks
Fannar Óli jafnaði fyrir Hauka undir lok leiks
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Ægir varð fyrsta liðið til að leggja Þrótt V. að velli í 2. deild karla á þessu tímabili eftir frábæra endurkomu á Vogaídýfu-vellinum á Vogum. Kári átti svipaða endurkomu í 2-1 sigri sínum á Víði og þá vann Grótta öruggan 3-0 sigur á tíu mönnum KFG.

Þróttur V. 1 - 2 Ægir
1-0 Rúnar Ingi Eysteinsson ('45 )
1-1 Atli Rafn Guðbjartsson ('73 )
1-2 Sigurður Óli Guðjónsson ('90 )

Topplið Þróttar V. tapaði fyrir Ægi, 2-1, á Vogaídýfu-vellinum á Vogum.

Rúnar Ingi Eysteinsson, sem hefur verið heitur með Vogamönnum, skoraði mark heimamanna undir lok fyrri hálfleiks, en gestirnir sneru taflinu við í þeim síðari með mörkum frá Atla Rafni Guðbjartssyni og Sigurði Óla Guðjónssyni á síðustu tuttugu mínútunum.

SIgur Ægis náði að brúa bilið á toppnum en Ægir er í öðru sæti með 13 stig, tveimur á eftir Vogamönnum eftir sex umferðir.

Þróttur V. Jökull Blængsson (m), Ólafur Örn Eyjólfsson, Auðun Gauti Auðunsson, Hilmar Starri Hilmarsson, Anton Breki Óskarsson (73'), Jón Veigar Kristjánsson, Sigurður Agnar Br. Arnþórsson (80'), Guðni Sigþórsson, Ásgeir Marteinsson (73'), Rúnar Ingi Eysteinsson (87'), Kostiantyn Pikul
Varamenn Hreinn Ingi Örnólfsson, Jóhannes Karl Bárðarson (80'), Eyþór Orri Ómarsson (73'), Almar Máni Þórisson (87'), Jón Kristinn Ingason, Birgir Halldórsson (73'), Rökkvi Rafn Agnesarson (m)

Ægir Andri Þór Grétarsson (m), Stefan Dabetic, Aron Fannar Hreinsson (71'), Atli Rafn Guðbjartsson, Jordan Adeyemo, Dimitrije Cokic, Sigurður Óli Guðjónsson, Bilal Kamal (87'), Einar Breki Sverrisson, Benedikt Darri Gunnarsson, Baptiste Gateau
Varamenn Ísak Aron Ómarsson (87), Jón Jökull Þráinsson, Arnar Logi Sveinsson, Aron Daníel Arnalds (71), Aron Óskar Þorleifsson (m)

Haukar 1 - 1 Víkingur Ó.
0-1 Kwame Quee ('23 )
1-1 Fannar Óli Friðleifsson ('89 )

Haukar og Víkingur Ó. gerðu 1-1 jafntefli á BIRTU-vellinum í Hafnarfirði.

Ólsarar náðu forystunni í fyrri hálfleiknum með marki Kwame Quee á 23. mínútu en það var Fannar Óli Friðleifsson sem bjargaði stigi fyrir Hauka með marki á 89. mínútu leiksins.

Gott stig hjá báðum liðum en Haukar eru í 4. sæti með 11 stig á meðan Ólafsvíkingar eru í 8. sæti með 6 stig.

Haukar Sveinn Óli Guðnason (m), Ísak Jónsson, Eiríkur Örn Beck, Bjarki Viðar Björnsson, Fannar Óli Friðleifsson, Máni Mar Steinbjörnsson, Daði Snær Ingason, Kostiantyn Iaroshenko, Alexander Aron Tómasson, Daníel Smári Sigurðsson, Guðjón Pétur Lýðsson
Varamenn Andri Steinn Ingvarsson, Óliver Steinar Guðmundsson, Óliver Þorkelsson, Hallur Húni Þorsteinsson, Magnús Ingi Halldórsson, Baltasar Trausti Ingvarsson, Þorsteinn Ómar Ágústsson (m)

Víkingur Ó. Jón Kristinn Elíasson (m), Ingvar Freyr Þorsteinsson, Gabriel Þór Þórðarson, Daði Kárason, Ivan Lopez Cristobal, Luke Williams, Kristófer Áki Hlinason, Luis Romero Jorge, Luis Alberto Diez Ocerin, Asmer Begic, Kwame Quee
Varamenn Anel Crnac, Brynjar Óttar Jóhannsson, Björn Darri Ásmundsson, Björn Henry Kristjánsson, Ellert Gauti Heiðarsson, Kristall Blær Barkarson (m)

Kári 2 - 1 Víðir
0-1 Uros Jemovic ('49 )
1-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('76 )
2-1 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('85 )

Kári lagði Víði að velli, 2-1, í Akraneshöllinni. Heimamenn lentu undir snemma í síðari hálfleik með marki Uros Jemovic, en það var svipuð uppskrif og í toppslag Þróttar og Ægis.

Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var til leiksloka og skoraði Marinó Hilmar Ásgeirsson sigurmarkið níu mínútum síðar.

Kári er í 9. sæti með 6 stig en Víðismenn í 10. sæti með 5 stig.

Kári Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m), Tómas Týr Tómasson, Benjamín Mehic (46'), Hektor Bergmann Garðarsson (72'), Birkir Hrafn Samúelsson, Máni Berg Ellertsson (81'), Sveinn Svavar Hallgrímsson, Oskar Wasilewski, Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson, Matthías Daði Gunnarsson (61'), Börkur Bernharð Sigmundsson (81')
Varamenn Marinó Hilmar Ásgeirsson (72'), Sigurjón Logi Bergþórsson (61'), Sigurður Hrannar Þorsteinsson, Mikael Hrafn Helgason (81'), Marteinn Theodórsson (81'), Kristian Mar Marenarson (46'), Kasper Úlfarsson (m)

Víðir Joaquin Ketlun Sinigaglia (m), Cameron Michael Briggs, Alexis Alexandrenne, Markús Máni Jónsson, Uros Jemovic, Daniel Beneitez Fidalgo (79'), Cristovao A. F. Da S. Martins, Björgvin Freyr Larsson, Haraldur Smári Ingason, Dominic Lee Briggs (59'), Kristófer Snær Jóhannsson
Varamenn Dusan Lukic (79), Paolo Gratton (59), Tómas Freyr Jónsson, Eyþór Ingi Einarsson, Þórir Guðmundsson, Jón Garðar Arnarsson (m)

Kormákur/Hvöt 0 - 1 Dalvík/Reynir
0-1 Sævar Þór Fylkisson ('11 )

Sævar Þór Fylkisson var hetja Dalvíkur/Reynis sem vann nauman 1-0 sigur á Kormáki/Hvöt á Blönduósi.

Sævar skoraði eina mark leiksins á 11. mínútu leiks og tryggði sínum mönnum þriðja sigur tímabilsins.

Dalvík/Reynir er í 5. sæti með 10 stig, fimm stigum frá toppnum, en Kormákur/Hvöt í 6. sæti með 9 stig.

Kormákur/Hvöt Simon Zupancic (m), Sigurður Pétur Stefánsson, Sergio Francisco Oulu, Acai Nauset Elvira Rodriguez, Papa Diounkou Tecagne (79'), Helistano Ciro Manga (46'), Kristinn Bjarni Andrason, Sigurður Bjarni Aadnegard (46'), Goran Potkozarac, Juan Carlos Dominguez Requena, Marko Zivkovic (46')
Varamenn Matheus Bettio Gotler (46'), Jón Gísli Stefánsson (79'), Hlib Horan, Arnór Ágúst Sindrason, Abdelhadi Khalok El Bouzarrari (46'), Jaheem Burke (46'), Stefán Freyr Jónsson

Dalvík/Reynir Auðunn Ingi Valtýsson (m), Rúnar Helgi Björnsson (52'), Hákon Atli Aðalsteinsson, Miguel Joao De Freitas Goncalves, Martim Fortuna Soares Sequeira Cardoso (82'), Borja Lopez Laguna (71'), Remi Marie Emeriau, Alex Máni Gærdbo Garðarsson (82'), Gunnlaugur Rafn Ingvarsson, Áki Sölvason, Sævar Þór Fylkisson (71')
Varamenn Þröstur Mikael Jónasson (71), Sindri Sigurðarson (82), Bjarmi Fannar Óskarsson (52), Tómas Þórðarson (82), Hjörtur Freyr Ævarsson (71), Bjarmi Már Eiríksson, Viktor Daði Sævaldsson (m)

Grótta 3 - 0 KFG
1-0 Björgvin Brimi Andrésson ('57 )
2-0 Kristófer Dan Þórðarson ('65 )
3-0 Björgvin Stefánsson ('85 )
Rautt spjald: ,Helgi Snær Agnarsson , KFG ('41)Veigar Páll Gunnarsson , KFG ('86)

Grótta vann góðan 3-0 sigur á KFG á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi.

Helgi Snær Agnarsson, leikmaður KFG, sá rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks og náðu Gróttumenn að raða inn mörkunum í þeim síðari gegn tíu Garðbæingum.

Björgvin Brimi Andrésson og Kristófer Dan Þórðarson skoruðu tvö á átta mínútum áður en Björgvin Stefánsson rak síðasta naglann í kistu KFG með öðru marki sínu í sumar.

Grótta er í 3. sæti með 11 stig en KFG með aðeins 4 stig í næst neðsta sæti.

Grótta Marvin Darri Steinarsson (m), Grímur Ingi Jakobsson, Patrik Orri Pétursson (73'), Valdimar Daði Sævarsson, Caden Robert McLagan, Björgvin Brimi Andrésson, Axel Sigurðarson (73'), Einar Tómas Sveinbjarnarson (86'), Daði Már Patrekur Jóhannsson, Kristófer Dan Þórðarson (73'), Daníel Agnar Ásgeirsson (67')
Varamenn Benedikt Þór Viðarsson, Björgvin Stefánsson (73'), Hrannar Ingi Magnússon (73'), Dagur Bjarkason (86'), Viktor Orri Guðmundsson (67'), Benedikt Aron Albertsson (73'), Alexander Arnarsson (m)

KFG Guðmundur Rafn Ingason (m), Jón Arnar Barðdal, Róbert Kolbeins Þórarinsson (80'), Helgi Snær Agnarsson, Kristján Ólafsson (46'), Arnar Ingi Valgeirsson, Elvar Máni Guðmundsson (73'), Bóas Heimisson (73'), Guðmundur Thor Ingason, Dagur Óli Grétarsson (64'), Jökull Sveinsson
Varamenn Guðmundur Ísak Bóasson (73), Benedikt Pálmason (73), Atli Freyr Þorleifsson (80), Magnús Andri Ólafsson (64), Arnar Darri Þorleifsson, Djordje Biberdzic (46), Eyþór Örn Eyþórsson
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur V. 6 5 0 1 11 - 4 +7 15
2.    Ægir 6 4 1 1 12 - 7 +5 13
3.    Grótta 6 3 2 1 9 - 5 +4 11
4.    Haukar 6 3 2 1 10 - 7 +3 11
5.    Dalvík/Reynir 6 3 1 2 8 - 4 +4 10
6.    Kormákur/Hvöt 6 3 0 3 6 - 12 -6 9
7.    KFA 6 2 2 2 13 - 9 +4 8
8.    Víkingur Ó. 6 1 3 2 10 - 9 +1 6
9.    Kári 6 2 0 4 6 - 9 -3 6
10.    Víðir 6 1 2 3 7 - 9 -2 5
11.    KFG 6 1 1 4 8 - 13 -5 4
12.    Höttur/Huginn 6 0 2 4 4 - 16 -12 2
Athugasemdir
banner