Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 06. júlí 2019 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin úr sigri Þórs gegn Fram í gær
Aron Elí Sævarsson í leik gegn Þór fyrr í sumar. Hann skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Þór í gær.
Aron Elí Sævarsson í leik gegn Þór fyrr í sumar. Hann skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Þór í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór Akureyri vann 3-0 sigur á Fram á Þórsvellinum er liðin mættust í Inkasso-deild karla í gær.

Aron Elí Sævarsson skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Þór og bættu Jónas Björgvin Sigurbergsson og Jakob Snær Árnason við mörkum í seinni hálfleik. Þór spilaði einum fleiri frá 30. mínútu eftir að Jökull Steinn Ólafsson fékk að líta rauða spjaldið.

Þór 3 - 0 Fram
1-0 Aron Elí Sævarsson ('38 )
2-0 Jónas Björgvin Sigurbergsson ('67 )
3-0 Jakob Snær Árnason ('88 )
Rautt spjald:Jökull Steinn Ólafsson , Fram ('30)
Lestu nánar um leikinn

Þór er í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar eftir gærdaginn og Fram í fimmta sæti.

Stöð 2 Sport var með beina útsendingu frá leiknum og voru mörkin birt inn á Vísi eftir leikinn.

Mörkin sem skoruð voru í leiknum má sjá hérna að neðan.


Athugasemdir
banner
banner