Ein breyting var gerð á markmannstríói íslenska landsliðsins í hópnum sem opinberaður var í dag. Gunnleifur Gunnleifsson fer út en í hans stað kemur Ögmundur Kristinsson sem hefur verið að gera góða hluti með Randers í Danmörku.
„Ögmundur er búinn að taka næsta skref með því að fara í atvinnumennsku. Hann er búinn að spila nokkra leiki undanfarið. Hann hefur verið að vinna í umhverfi sem gerir markmenn betri, hann er að bæta sig," segir Guðmundur Hreiðarsson, markvarðaþjálfari Íslands.
„Ástæðan fyrir því að Gulli fer út úr hópnum er að hinir eru komnir lengra en áður. Ekki af því að Gulla hefur farið aftur. Þróunin í fótboltanum er þannig að markmenn sem æfa við aðstæður eins og Ögmundur hefur æft við hljóta að koma til greina hjá okkur."
Hannes Þór Halldórsson er aðalmarkvörður Íslands en að auki er Ingvar Jónsson áfram í hópnum.
„Þetta er okkar sterkasti markmannskjarni í dag en svo getur það breyst. Það spilar margt inn í þetta. Maður veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Ögmundur er markvörður sem gæti verið markvörður næstu 10-15 árin meðan hlutunum er öðruvísi farið með Gulla. Alltaf verður maður að hafa til hliðsjónar að velja sterkasta liðið."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






















