Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   lau 11. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn í dag - Borgarslagur í Barcelona og Orri Steinn á heimavelli
Barcelona mætir Espanyol í grannaslag
Barcelona mætir Espanyol í grannaslag
Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona mæta nágrönnum sínum í Espanyol í borgarslag í Barcelona í 31. umferð La Liga á Spáni í dag.

Dagskráin hefst klukkan 12:00 er Real Sociedad tekur á móti Deportivo Alaves.

Orri Steinn Óskarsson spilaði tíu mínútur í síðasta leik og möguleiki á að hann fái fleiri mínútur í lappirnar í dag. Sociedad er í baráttu um Evrópusæti en liðið er í 7. sæti með 41 stig.

Elche mætir Valencia klukkan 14:15 áður en Barcelona tekur á móti Espanyol. Börsungar eru á toppnum með 76 stig og eru nú með sjö stiga forystu en Espanyol í 10. sæti með 38 stig.

Í kvöld tekur síðan Sevilla á móti Atlético Madríd í Seville-borg, en Sevilla er í 17. sæti með 31 stig, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti á meðan Atlético er með nokkuð þægilegt forskot í 4. sæti, sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildina, en tólf stig eru á milli Atlético og Real Betis, sem er í fimmta sætinu.

Leikir dagsins:
12:00 Real Sociedad - Alaves
14:15 Elche - Valencia
16:30 Barcelona - Espanyol
19:00 Sevilla - Atletico Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 30 1 4 91 31 +60 91
2 Real Madrid 35 24 5 6 70 33 +37 77
3 Villarreal 35 21 6 8 65 40 +25 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 38 +22 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 35 13 6 16 28 36 -8 45
8 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
9 Athletic 35 13 5 17 40 51 -11 44
10 Vallecano 35 10 13 12 36 42 -6 43
11 Osasuna 36 11 9 16 42 47 -5 42
12 Valencia 35 11 9 15 38 50 -12 42
13 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
14 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
15 Mallorca 35 10 9 16 43 52 -9 39
16 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
17 Girona 35 9 12 14 37 52 -15 39
18 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
19 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
20 Oviedo 35 6 11 18 26 54 -28 29
Slapp
banner
banner