Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. apríl 2021 13:00
Elvar Geir Magnússon
Arsenal setur verðmiða á Torreira
Lucas Torreira.
Lucas Torreira.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur sett 15 milljóna punda verðmiða á úrúgvæska miðjumanninn Lucas Torreira.

Torreira er hjá Atletico Madrid á lánssamningi eftir að hafa verið aftarlega í goggunarröðinni hjá Mikel Arteta.

Sagt er að Torreira vilji flytja aftur til Suður-Ameríku af fjölskylduástæðum en hann á enn tvö ár eftir af samningi sínum við Arsenal. Móðir hans lést nýlega og hann vill vera nær fjölskyldu sinni.

Hinn 25 ára Torreira vill fara til Boca Juniors í Argentínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner