,,Menn eru gífurlega spenntir. Þetta er frábært verkefni," sagði Hjörtur Hermannsson varnarmaður U21 árs landsliðsins við Fótbolta.net í kvöld en Ísland leikur við Danmörku í umspili um sæti á EM annað kvöld.
,,Við erum búnir að taka þrjá vídjó fundi og skoða þá vel. Við erum líka með nokkra stráka sem eru að spila í Danmörku og þekkjum vel inn á þá."
,,Við erum búnir að taka þrjá vídjó fundi og skoða þá vel. Við erum líka með nokkra stráka sem eru að spila í Danmörku og þekkjum vel inn á þá."
U21 árs landsliðið fór á EM í Danmörku árið 2011 og Hjörtur vonast til að ná sama árangri. ,,Við lítum upp til þeirra stráka og þeir eru að standa sig vel nú með A-landsliðinu. Við viljum klárlega leika það eftir."
Hinn 19 ára gamli Hjörtur leikur með B-liði PSV Eindhoven í hollensku B-deildinni og hann vonast til að banka á dyrnar hjá aðalliðinu fljótlega.
,,Maður mjakast alltaf áfram. Manni þarf að halda áfram að ganga vel og sjá hvað gerist. Það eru engir aukvisar á undan mér, það eru strákar í hollenska landsliðinu. Maður bíður bara rólegur eftir sínu tækifæri og grípur það."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























