Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
banner
   fös 10. apríl 2026 20:54
Fótbolti.net
Tilboð Keflavíkur í Oliver Heiðarsson samþykkt
Oliver Heiðarsson gæti spilað með Keflavík í sumar.
Oliver Heiðarsson gæti spilað með Keflavík í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Króatíska félagið NK Lokomotiva Zagreb hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fótbolta.net samþykkt tilboð frá Keflavík í sóknarmanninn Oliver Heiðarsson.


Oliver gekk til liðs við króatíska félagið í janúar en þangað fór hann frá ÍBV.  Þar hafa tækifærin hins vegar verið af afar skornum skammti en hann hefur ekki komið við sögu í deildarleik. 

Nýlega var greint frá því í fjölmiðlum að íslensk lið hefðu áhuga á Oliver og nú er ljóst að Keflvíkingar hafa fengið samþykkt kauptilboð í leikmanninn. 

Oliver er 25 ára gamall leikmaður og hefur spilað með Þrótti, FH og ÍBV hér á landi. Hann á að baki 124 meistaraflokksleiki á Íslandi og hefur skorað í þeim 29 mörk. 

Hann er sonur Heiðars Helgusonar, fyrrum atvinnu og landsliðsmanns í knattspyrnu.

Keflavík leikur í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa sigrað Lengjudeildarumspilið í fyrra, Liðið mætir KR á útivelli í fyrstu umferð á sunnudag.


Slapp
banner
banner