Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. maí 2021 18:24
Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið Fylkis og KR: Aron Snær í markinu - Óbreytt hjá KR
Aron Snær Friðriksson byrjar í marki Fylkismanna
Aron Snær Friðriksson byrjar í marki Fylkismanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 19:15 flautar Egill Arnar Sigurþórsson til leiks á Würth vellinum í Árbænum þegar Fylkir og KR mætast í 3.umferð Pepsí Max-deildarinnar. Gylfi Tryggvason textalýsir leiknum.

Heimamenn í Fylki fóru inn í Kórinn í síðustu umferð og gerðu 2-2 jafntefli við HK. KR fékk skell á Meistaravöllum þegar liðið tapaði 1-3 gegn KA.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Atli Sveinn Þórarinsson og Ólafur Ingi Stígsson gera 3 breytingar frá jafnteflinu gegn HK í síðustu umferð. Aron Snær Friðriksson kemur inn á markið í staðin fyrir Ólaf Kristófer Helgason. Unnar Steinn Ingvarsson kemur einnig inn í liðið en hann var í leikbanni í síðasta leik þá kemur Jordan Brown einnig inn í liðið. Á bekkinn setjast Þórður Gunnar Hafþórsson og Orri Hrafn Kjartansson

Rúnar Kristinsson gerir engar breytingar frá tapinu gegn KA í síðustu umferð.

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Unnar Steinn Ingvarsson
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Torfi Tímoteus Gunnarsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Jordan Brown
11. Djair Parfitt-Williams
22. Dagur Dan Þórhallsson
23. Arnór Borg Guðjohnsen

Byrjunarllið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Guðjón Baldvinsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
29. Stefán Árni Geirsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner