Elvar Geir Magnússon skrifar frá Hilton Nordica
„Það er engin ástæða til að óttast hollenska liðið en við mætum tilbúnir til leiks," segir Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, fyrir leikinn gegn Hollandi. Leikurinn verður annað kvöld klukkan 18:45 á Laugardalsvelli.
„Það verður pottþétt meira að gera (fyrir varnarmennina) á móti Lettum en það er bara skemmtilegra."
„Það verður pottþétt meira að gera (fyrir varnarmennina) á móti Lettum en það er bara skemmtilegra."
„Við þurfum ekkert að skoða hollenska liðið sérstaklega mikið. Við vitum að þeir vilja halda boltanum og sækja hratt. Það eru allir meðvitaðir um það."
Eins og við greindum frá fyrr í dag varð helmingur farangurs íslenska landsliðsins eftir í Lettlandi. Hefur það ekki sett strik í reikninginn?
„Ég held að það hafi allir fengið skó fyrir æfinguna í dag. Það var óþarflega mikið stress yfir þessu. Maður veit að svona hlutir reddast þó þetta sé pirrandi. Ég er til dæmis í skítugum nærbuxum og skítugum sokkum. Það er ekkert æðislegt en ég held að við fáum töskurnar í dag."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.























