Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. október 2018 08:36
Fótbolti.net
Landsliðsumræða á X977 í dag
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Elvar Geir og Tómas Þór standa vaktina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag, þátturinn verður 12-14.

Íslenska landsliðið verður að sjálfsögðu áberandi í þættinum.

2-2 jafnteflisleikur Frakklands og Íslands verður gerður upp. Elvar er nýlentur frá Frakklandi og Tómas lýsti leiknum á Stöð 2 Sport.

Spáð verður í spilin fyrir leikinn gegn Sviss sem verður á mánudagskvöld og farið yfir líklegt byrjunarlið.

Aðrir landsleikir og Pepsi-deildin koma einnig við sögu í þættinum.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner