Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   fim 13. nóvember 2014 11:56
Magnús Már Einarsson
skrifar frá Brussel
Courtois: Ísland spilaði mjög vel
Icelandair
Courtois var frábær í gærkvöldi.
Courtois var frábær í gærkvöldi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ísland spilaði mjög vel," sagði Thibaut Courtois markvörður Belga við Fótbolta.net í dag.

Courtois átti frábæran leik í marki Belga í 3-1 sigri á Íslendingum í gærkvöldi en hann var valinn maður leiksins. Courtois hreifst af íslenska liðinu.

,,Þeir spiluðu ekki með sitt sterkasta lið en við vorum samt í vandræðum og það segir mikið um liðið," bætti Courtois við.

,,Ísland er með 9 stig af 9 mögulegum í riðlinum og er að berjast við Tékka um efsta sætið. Þetta er sterkur hópur og þeir munu koma mörgum liðum í vandræði."

Ögmundur Kristinsson átti flottan leik í fyrri hálfleik í marki Íslands og Courtois hrósaði honum og Ingvari Jónssyni sem spilaði síðari hálfleikinn.

,,Þeir spiluðu báðir vel. Í fyrri hálfleik varði markvörðurinn nokkrum sinnum vel en í síðari hálfleik náðum við að skora tvö mörk."

Fyrr í viðtalinu svaraði Courtois spurningu frá Gary Cotterill fréttamanni Sky um stöðu Petr Cech hjá Chelsea. Tékkneski markvörðurinn er á eftir Courtois í röðinni og hann gæti farið frá Chelsea í janúar.

,,Sem markvörður vill maður spila. Ef ég væri í þessari stöðu og væri ekki að spila þá myndi ég fara líka. Petr er góður markvörður og einn af þeim bestu. Það er frábært að æfa með honum líka. Allir vona að við getum verið báðir áfram en við skiljum að hann vilji kannski fara," sagði Courtois.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en Courtois fékk einungis leyfi hjá fjölmiðlafulltrúa Belga til að svara tveimur spurningum frá Fótbolta.net.
Slapp
banner