Stjarnan vann FH 3-2 í kvöld í annari umferð Bestu deild karla. Liðið var með stjórn á leiknum lengst af en þurfti samt sem áður mark seint í leiknum til að ná í öll þrjú stigin. Jökull Elísabetarson þjálfari liðsins var ánægður með leikinn.
„Þetta var skemmtilegur fótboltaleikur, góður leikur. Mér fannst við vera með tök á leiknum, og vissum auðvitað að við þyrftum að beita einhverjum skyndisóknum og skora upp úr einni slíkri. Annars var ég bara ánægður með leikinn, þetta var skemmtilegur leikur, og ég bjóst kannski við þeim í aðeins stífari pressu, aðeins meiri ákefð. Ég er bara ánægður með leikinn, og stuðningurinn úr stúkunni, og stemingin, bara tryllt. Mjög skemmtilegt kvöld á Samsung vellinum," sagði Jökull.
Jökull talaði um það fyrir tímabil að hann hafi verið ósáttur með spilamennsku Stjörnunnar í lok síðasta tímabils. Stjarnan spilaði skemmtilegan fótbolta í kvöld og því spurning hvort Jökli hafi tekist að snúa því við.
„Mér fannst við spila góðan fótbolta fyrir norðan, svo fórum við aðeins að 'forsa' það. Svo fannst mér bara allan leikinn í dag vera að spila vel og vera með stjórn á leiknum með boltann. Við héldum því áfram þegar þeir hentu öllu á okkur í lokin, þá héldum við bara áfram með sóknarsinnaða uppstillingu. Ég er mjög ánægður með liðið, sýndum mikið hugrekki og gerðum vel að koma til baka," sagði Jökull.
Stjarnan fékk á sig víti í lok fyrri hálfleiks sem hefur heldur betur verið umdeildur dómur.
„Ég þarf held ég ekkert að kommenta á það, þetta er ekki víti og það gerir leikinn bara erfiðari. Ég væri örugglega svekktari núna ef við hefðum ekki unnið leikinn. Það er bara full oft þegar Örvar Eggerts er nálægt einhverjum hasar að dómar fara gegn honum, og spjöld fara gegn honum. Eiginlega alveg sama hvað gengur á, og það er bara orðið helvíti þreytt," sagði Jökull.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.























