Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 15:47
Elvar Geir Magnússon
Bayern líklegt til að gera tilboð í Gordon
Mynd: EPA
Bayern München ku hafa áhuga á Anthony Gordon, leikmanni Newcastle.

Það gæti reynst strembið fyrir Newcastle að halda enska kantmanninum ef liðinu mistekst að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili.

Gordon kom til Newcastle frá Everton 2023 og er samningsbundinn til 2030. Hann er markahæstur hjá Newcastle á tímabilinu með 17 mörk í öllum keppnum.

The Times segir Þýskalandsmeistarana tilbúna að reiða fram rúmlega 55 milljónum punda til að landa Gordon.
Slapp
banner
banner