Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 14:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Ólafur Íshólm Ólafsson (Leiknir)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Unreal talent.
Unreal talent.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Geturu tekið Yoda?
Geturu tekið Yoda?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þarf ekki einu sinni að nefna af hverju það er mynd af Ragnari Braga.
Þarf ekki einu sinni að nefna af hverju það er mynd af Ragnari Braga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kóngurinn.
Kóngurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Þór kann listina að vera fyndinn.
Stefán Þór kann listina að vera fyndinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bogdan Bogdanovic, fyrrum NBA leikmaður.
Bogdan Bogdanovic, fyrrum NBA leikmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Væri til í Gumma Magg í Breiðholtið.
Væri til í Gumma Magg í Breiðholtið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Íshólm er reynslumikill markvörður sem uppalinn er hjá Fylki og hefur einnig verið hjá Breiðabliki og spilað með Fram og Leikni á sínum ferli. Hann söðlaði um síðasta vor og hélt í Leikni eftir rúm sex tímabil með Fram. Hann var besti leikmaður Leiknis síðasta sumar.

Hann hjálpaði Fram að fara ósigrað upp úr Lengjudeildinni 2021 og setti liðið stigamet það ár. Hann lék á sínum tíma tvo U17 landsleiki og var valinn í U21 landsliðið. Í dag sýnir Ólafur á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Ólafur Íshólm Ólafsson

Gælunafn: Óli

Aldur: 30

Hjúskaparstaða: Einhleypur

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var upp á Skaga 2013 með Fylki. Síðasti leikurinn það tímabilið, ég var búinn að vera glíma við erfið meiðsli meira og minna allt tímabilið og spilaði því nokkuð óvænt. Það sem er kannski mest minnisstætt í þessum leik er að ég fékk krampa í kálfann í upphitun.

Uppáhalds drykkur: Grænn kristall

Uppáhalds matsölustaður: Just wingin’ it

Uppáhalds tölvuleikur: Hef ekki spilað tölvuleiki í mörg ár en var helvíti góður í Gran turismo í gamla daga

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Yellowstone

Uppáhalds tónlistarmaður: Chris Stapelton

Uppáhalds hlaðvarp: This past weekend með Theo Von

Uppáhalds samfélagsmiðill: Ætli það sé ekki bara Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Það er alltaf sami hringurinn bara, .net, Vísir og Mbl

Fyndnasti Íslendingurinn: Hérna verð ég að setja kollega minn og fyrrum liðsfélaga Stefán Þór Hannesson

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Má bjóða þér að svara könnun um þjónustu heilsugæslunnar? Smelltu þá á hlekkinn https://island.is/s/hh/arbaer/konnun

Heilsugæslan Árbær, Hraunbæ 115

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Segi bara pass

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Ætli það sé ekki bara Gylfi Sig

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Aðalsteinn Aðalsteinsson, þjálfaði mig fyrst í 7. flokki og hefur eiginlega bara ekkert hætt að þjálfa mig síðan. Var frábær með Nonna Sveins í Fram og hefur verið til staðar fyrir mig í gegnum allan minn feril.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Ragnar Bragi Sveinsson á þetta alveg skuldlaust. Leikmaður sem er gott að vera með í liði en alveg óþolandi að spila á móti.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Edwin Van Der Sar

Sætasti sigurinn: 2021 Þegar við í Fram tryggðum okkur sæti í efstu deild.

Mestu vonbrigðin: Þegar mótinu var cancelað 2020 útaf covid þegar við áttum tvo leiki eftir og séns að fara upp.

Uppáhalds lið í enska: Manchester United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég væri bara til í að fá my roomie back, Guðmund Magnússon

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Ætli það sé ekki bara Sigurður Breki Kárason

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Það hlýtur bara að vera Axel Freyr Harðarson

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi:

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Paul Scholes

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Úff bara hætta þessu 8 sekúndna bulli á markmenn og setja það á í innköstin í staðinn.

Uppáhalds staður á Íslandi: Sæluríki við Tjaldafell

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Held að svona eftirminnilegasta atvikið sé 2021 þegar Stebbi spilaði síðasta leikinn á tímabilinu gegn Kórdrengjum uppá Leiknisvelli. Við vorum taplausir fram að þeim leik. Þegar það voru komnar 90+5 mín á klukkuna vorum við 2-1 undir og fáum ranglega dæmda hornspyrnu þar sem Stefán hinn ungi skokkar upp völlinn í von um að jafna leikinn og bæta upp fyrir smávægileg mistök sem kostuðu mark. Hornspyrnan var tekin og skölluð af varnarmanni Kórdrengja beint í hnéð á Stefáni og þaðan til Gumma Magg sem skoraði. Mönnum bar svo ekki saman um hvort þetta hafi verið heppni eða bara listilega vel stýrt með hnénu, en allavega assist hjá Stebba og invincible tímabilið tryggt.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist aðeins með UFC og F1

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas Predator og svo er ég í The One Glove hönskum.

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Halda einbeitingu

Vandræðalegasta augnablik: Sennilega bara þegar ég kallaði ónefndan dómara vitlausu nafni allan leikinn sem hann svo leiðrétti þegar ég var að þakka honum fyrir leikinn. Þá leið mér eins og kjána

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Djordje, Bogdan og Gísla Alexander. Hreinlega bara af því þeir þurfa á því að halda, voru held ég allir undir 5% fitu

Bestur/best í klefanum og af hverju: Low key Bogdan Bogdanovic

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Kári Steinn í einhverja Got talent seríuna. Hef heyrt af einhverri Yoda söng eftirhermu sem mig langar mikið að sjá.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Er slysabarn

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Xeni, unreal talent.

Hverju laugstu síðast: Sagði samstarfsmanni mínum að hann væri flott klipptur

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Einhverjar svona uppspils pælingar sem eiga að enda með skoti en þjálfararnir eyða öllum tímanum í að stoppa og tala. Á meðan stöndum við markverðirnir bara að bíða og vonast til að fá að vera einhvað með á æfingunni.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Richard Nixon: “did you fake the moon landing?”

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Bara vonast innilega til að sjá sem flest Leiknisfólk í stúkunni í sumar og búa til góða stemningu.
Slapp
banner
banner