Sindri Björnsson, miðjumaður Leiknis, átti góðan leik í 1-1 jafnteflinu við Stjörnuna í kvöld. Hvernig var að spila þennan leik?
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 1 Leiknir R.
„Það var mjög gaman. Það var geðveik stemning í stúkunni. Þetta eru tveir geggjaðir stuðningsmannahópar. Þetta var snilld. Við vorum góðir," sagði Sindri.
„Við skoruðum tvö lögleg mörk í þessum leik. Mér fannst við vera með þetta. Línuvörðurinn flaggaði brot á markvörðinn þeirra. Þeir hafa svo gaman að því. Þetta var mjög random en pælum ekki í því."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















