Manchester City er úr leik í Meistaradeildinni eftir 2-1 tap gegn Real Madrid í 16-liða úrslitum á Etihad í gær en liðið tapaði fyrri leiknum 3-0 á Spáni.
Bernardo Silva fékk að líta rauða spjaldið og Vinicius Jr kom Real Madrid yfir úr vítaspyrnu. Erling Haaland jafnaði metin en Vinicius innsiglaði sigurinn.
Bernardo Silva fékk að líta rauða spjaldið og Vinicius Jr kom Real Madrid yfir úr vítaspyrnu. Erling Haaland jafnaði metin en Vinicius innsiglaði sigurinn.
Man City mætir Arsenal í úrslitum enska deildabikarsins á sunnudaginn, liðin eru í baráttu um titilinn í deildinni og City mætir Liverpool í 8-liða úrslitum enska bikarsins.
„Við munum keppa á móti besta liði Englands og besta liði Evrópu til þessa. Við munum berjast við þá og spila svo við þá í deildinni," sagði Guardiola.
„Stundum eru þeir betri og það er gott að sjá hvað við þurfum að gera betur. Það er úrslitaleikur á sunnudaginn, við erum enn í enska bikarnum og í baráttu um titilinn í deildinni. Við munum berjast og undirbúa góðar ákvarðanir fyrir næsta tímabil, við mætum aftur."
Athugasemdir




