Varnarmaðurinn Evan Ndicka er sjóðandi heitur með ítalska liðinu Roma í síðustu leikjum en hann skoraði þriðja leikinn í röð í 2-1 tapi gegn Como um helgina, en það tók hann langan tíma að opna markareikninginn með liðinu.
Frakkinn kom til Roma frá Frankfurt árið 2023 og hafði spilað 83 deildarleiki með Rómverjum áður en hann náði loks að koma boltanum í netið.
Hann hafði skorað tvö Evrópumörk með Roma, en aldrei skorað deildarmark eða ekki fyrr en hann.
Ndicka skoraði fyrsta deildarmark sitt í 3-3 jafnteflinu gegn Juventus 1. mars og síðan annað markið í 2-1 tapi gegn Genoa í síðustu viku.
Miðvörðurinn gerði síðan eina mark Roma í 2-1 tapinu gegn Como um helgina. Ótrúlegt skrið sem hann er á eftir mikla markaþurrð með Rómverjum.
Ndicka er 26 ára gamall uppalinn Frakki en með rætur að rekja til Fílabeinsstrandarinnar. Hann skipti um landslið árið 2023 og hefur síðan þá spilað 27 landsleiki með Fílabeinsströndinni og einu sinni unnið Afríkukeppnina.
Athugasemdir



