Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Walker: Yfirgefðu leikinn áður en hann yfirgefur þig
Kyle Walker, leikmaður Burnley.
Kyle Walker, leikmaður Burnley.
Mynd: EPA
Englendingurinn Kyle Walker, bakvörður Burnley, lagði landsliðsskóna formlega á hilluna nýlega og er þegar farinn að huga að því að ljúka ferlinum.

Walker er 35 ára og vann allt sem hægt er að vinna með Manchester City áður en hann gekk í raðir Burnley í sumar.


Hann viðurkennir að vera kvíðinn fyrir því hvað taki við eftir ferilinn.

„Ég verð 36 ára í maí en mér líður vel. Það tekur vissulega lengri tíma að jafna sig eftir leiki. Ég er að vinna mun meiri varnarleik núna en ég hef gert á ferlinum en mér líður vel," segir Walker við Overlap.

„Ég veit ekki hvort ég haldi áfram að spila næstu árin. Þegar það kemur í hausinn á mér að þetta sé komið gott þá verð ég að hlusta. Yfirgefðu leikinn áður en hann yfirgefur þig."

„Ég hef verið stanslaust í fótbolta frá því að ég var sex ára. Þegar það er farið, hvað tekur við? Hvað fer ég út í? Ég hef ekkert gert á lífsleiðinni annað en vera í fótbolta. Það verður erfitt að hætta en þegar þú ert ekki nægilega góður lengur verður þú að sætta þig við það."

Burnley er að falla úr úrvalsdeildinni og verkefnið sem Walke er í núna er allt öðruvísi en hann þekkti hjá City.

„Það hefur verið andlega erfitt að fara frá Manchester City til Burnley. Það er engin vanvirðing gagnvart Burnley og leikmönnum liðsins því hér er fullt af frábærum ungum leikmönnum og andinn í klefanum góður. Mér hefur verið tekið opnum örmum," segir Walker.

Walker vann sautján titla á átta árum með Man City þar sem hann var lungan af sínum ferli.
Athugasemdir
banner